Gistiaðstöðu fyrir sex manns í þremur herbergjum. Til leigu íbúðir á Akureyri. Íbúðirnar eru búnar húsgögnum og með eldhúsi. Gisting.Brekkusel - Gistiheimilið Brekkusel
Íbúð er hentugur kostur fyrir fjölskyldur og minni hópa og rekur Brekkusel tvær íbúðir fyrir
ferðafólk. Önnur er leigð yfir sumartímann en hin er leigð allt árið.
Bjarkarstígur – heilsársleiga Íbúðin er 100 fm efri hæð í tvíbýlishúsi og er með tvö svefnherbergi með
svefnaðstöðu fyrir fjóra til fimm gesti. Íbúðin hefur vel búið eldhús auk þess sem gestir hafa aðgang að þvottavél
og þurrkara í sameiginlegu þvottahúsi.
Það tekur einungis fjórar til fimm mínútur að ganga í miðbæ Akureyrar frá Brekkugötu. Heimilisfang: Bjarkarstígur 7, 600 Akureyri.
Brekkugata - sumarleiga
Íbúðin er 100 fm efri hæð í
þríbýlishúsi staðsett ofarlega á Brekkugötu fyrir ofan íþróttavöllinn á Akureyri. Íbúðin var tekin
í gegn vorið 2008 og býður upp á þrjú svefnherbergi með svefnaðstöðu fyrir tvo í hverju herbergi. Í íbúðinni
er rúmgott og vel búið eldhús ásamt þvottahúsi með þvottavél og þurrkara.
Það tekur einungis tvær til þrjár mínútur að ganga í miðbæ Akureyrar frá Brekkugötu. Heimilsfang: Brekkugata 33, 600 Akureyri.