Bókunarskilmálar
Öll verð fyrir gistingu eru tilgreind fyrir hvert herbergi yfir nótt og innihalda alla opinbera skatta og gjöld.
Til að staðfesta bókun þarf að gefa upp greiðslukortanúmer, við tökum við helstu greiðslukortum.
Afbókun skal fara fram tveimur sólarhringum fyrir áætlaðan komudag. Ef afbókað er innan 48 klukkustunda fyrir áætlaðan komudag áskiljum við okkur þann rétt að skuldfæra eina gistinótt á greiðslukort viðkomandi. Ef engin afbókun á sér stað skuldfærum við bókaðar gistinætur á greiðslukortið, óháð því hversu margar þær eru.
Gistiheimilið er reyklaust og biðjum við gesti okkar að virða það. Sé gestur uppvís að reykingum áskiljum við okkur þann rétt að skuldfæra 5.000 kr. á kreditkort hans.
Lyklar að herbergjum eru afhentir milli 14.00 og 20.00 á komudegi, komi gestir eftir þann tíma ber þeim að láta okkur vita um áætlaðan komutíma.
Herbergjum skal skilað fyrir 12.00 á brottfarardegi.
Hægt er að fá dýnur án endurgjalds fyrir börn undir 12 ára aldri, ta

