Velkomin í Gistiheimilið Brekkuseli, Byggðavegi 97, Akureyri. Við leggjum áherslu á hlýlega og heimilislega gistingu miðsvæðis á
Akureyri í göngufæri frá sundlauginni, matvöruverslunum og miðbænum. Við bjóðum upp á uppbúin rúm í herbergjum
með og án baðherbergis sem og svefnpokagistingu. Gistiheimilið er á tveimur hæðum.
Öll aðstaða er til fyrirmyndar og stendur gestum til boða aðgangur að baði og fullbúnu eldhúsi ásamt setustofu á hvorri hæð.
Nýtt veturinn 2009 til 2010 – falleg íbúð við Bjarkarstíg
Í
október 2009 tókum við í gagnið fullbúna íbúð á Brekkunni með gistiaðstöðu fyrir fjóra til fimm á besta
stað á Akureyri í tveimur herbergjum. Íbúðin er staðsett við Bjarkarstíg beint á móti Davíðshúsi og er í fimm
mínútna göngufæri við miðbæðinn og sundlaugina. Íbúðin er leigð allt árið.
Þá erum við einnig með íbúð við Brekkugötu með gistiaðstöðu fyrir a.m.k. sex manns í þremur herbergjum sem er leigð yfir sumarið frá júní til ágúst.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til okkar.
Hildur Halldórsdóttir og Jón Ísleifsson